Hitaveita Laugaráss

Jarðhitinn er grundvöllur byggðar í Laugarási og fáum blandast sennilega hugur um það. Jarhitinn og hagnýting hans hlýtur því að vera einn stærsti þátturinn í umfjöllun um Þorpið í skóginum og mögulega einn sá vandmeðfarnasti, því allir höfðu skoðun á hitaveitunni. Hún var oft sannkallað hitamál.

Samantektin byggir á fundargerðum oddvitanefndar, stjórna hitaveitunnar, Hagsmunafélags Laugaráss og hreppsnefndar Biskupstungnahrepps.

Ég hef kosið að skipta umfjöllun um veituna í þrennt:

  1. Tímann fram að því að hitaveita var stofnuð formlega árið 1964.

  2. Tímann frá stofnun veitunnar, þar til Biskupstungnahreppur tók við rekstri hennar um 1980.

  3. Tímann frá þvi um 1980 og eins langt og gögn leyfa.

Nú hef ég opnað fyrir aðgang að fyrsta hlutanum: Hitaveita til 1964