Vatnsveitufélagið

Það safnast efni inn á þennan vef. Mörgu af því sem þangað er komið, er ólokið og því ekki birtingarhæft enn. Nú þykist ég hafa gert grein fyrir Vatnsveitufélagi Laugaráss, að svo miklu leyti sem mér er unnt. Ég byggi á fundargerðum og öðrum gögnum, frá oddvitanefndinni, hreppsnefnd Biskupstungnahrepps, Hitaveitu Laugaráss og Vatnsveitufélagi Laugaráss. Auk þessa leyfi ég mér að byggja nokkuð á eigin upplifun, enda var ég íbúi í Laugarási stærstan hluta þess tíma sem félagið starfaði, auk þess sem ég sat í stjórn þess í ein 8 ár og meðal þeirra voru síðustu ár félagsins.

Sannarlega þætti mér vænt um að fá ábendingar frá þeim Laugarásbúum sem þekkja sögu félagsins og gætu gert efnislegar athugasemdir við umfjöllunina, eða bætt við áhugaverðum hliðum starfseminnar.