AUSTURBYGGРC / 24 1980

Svandís og Pétur ásamt börnum. F.v Sólrún, Óskar, Birgir Rafn Þráinsson (sonur Svandísar) og Eva. (mynd frá Pétri)

1981 - 1985 Pétur Guðmundsson (f. 17.08.1945) og Svandís Ottósdóttir (f. 30.09.1947, d. 21.01.2012) bjuggu í Helgahúsi frá 1975 – 1980, en Pétur gegndi á þeim tíma starfi umsjónarmanns Hitaveitu Laugaráss.  Úr Helgahúsi fluttu þau í kjallara Gamla læknishússins í einhverja mánuði áður er þau fóru í nýbyggt hús sitt.
Árið 1985 fluttu þau til Reykjavíkur og þar býr Pétur nú.
Börn þeirra eru: Birgir Rafn Þráinsson (sonur Svandísar), (f. 11.01.1966), býr í Reykjavík, Eva Hrund (f. 13.01.1969) býr á Blönduósi, Sólrún Edda (f. 27.02.1975) býr í Reykjavík  og Óskar Freyr (f. 09.12.1976), býr í Reykjavík.

Sigríður (mynd af vef)

Sigríður (mynd af vef)

Þegar Pétur og Svandís fluttu til Reykjavíkur leigðu þau húsið:  Jakob Narfa Hjaltasyni og Guðbirni Þrastarsyni í um tvö ár og Gunnari Kristinssyni og Dóru Herbertsdóttur í um eitt ár, en þau störfuðu á Birkiflöt.

Sigríður Ingvarsdóttir (f. 01.11.1948) keypti húsið 1989 og þá fékk það hlutverk frístundahúss, sem það hefur gegnt síðan. Núverandi eigandi er Sigurhæðir ehf sem er í eigu Barkar Hrafnsonar, Elínar Norðmanns og Óskars Norðmanns.


Land: 2310m²
Íbúðarhús 1980: 198m²

Uppfært 06/2019